Fćrsluflokkur: Dćgurmál

Í tilefni dagsins

Í tilefni dagsins set ég hér á bloggiđ, tvö ljóđ eftir Jónas Hallgrímsson. Ţessi ljóđ eru tekin úr bók í minni eigu, sem er gefin út áriđ 1883 af hinu Íslenska Bókmenntafjelagi. Fyrsta útgáfa var prentuđ 1847 og varđ uppseld fljótlega.

             BÓSI.

Bósi ! geltu, Bósi minn !

en bíttu ekki,  hundur !

ella dregur einhver ţinn

illan kjapt í sundur

 

Hafđu ekki á ţjer heldra sniđ

höfđingja sem brosa,

en eru svona aptan viđ

ćru manns ađ tosa.

 

    VINDVÍSA

Ţegi ţú, vindur !

ţú kunnir aldregi

hóf á hvers manns hag ;

langar eru nćtur,

er ţú hinn leiđsvali

ţýtur í ţakstráum.

 

Jónas Hallgrímsson


Harmleikur í Blacksburg - Virginia

Ţetta er hrćđileg frétt frá Virginia. Ţví miđur, er ţetta afleiđing ţess ađ almenningur hefur ađgang ađ skotvopnum. Rétturinn til ađ verja sig er anzi sterkur í Bandaríkjunum og er einhvern megin greyptur í ţjóđarsálina. Ţetta skilur ađeins sá sem hefur búiđ ţar í einhvern tíma og kynnst amerísku ţjóđarsálinni.

Ţess má geta ađ ég kom á ţetta skólasvćđi í Blacksburg á seinni hluta níunda áratugarins en ţetta er stór háskóli međ um 35.000 nemendur. Í ţessari heimsókn, sá ég m.a minn fyrsta og eina ameríska fótboltaleik "live" og var ţađ ógleymanleg reynsla.

 


mbl.is Íslendingur óhultur eftir árás í tćkniskólanum í Virginíu
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Konur kítla pinnann í brekkunni.

f430_01Ég keyri Ártúnsbrekkuna tvisvar á dag og stundum oftar. Fyrir ţá sem eru ekki kunnugir brekkunni og einu leiđinni austur úr Reykjavík, ţá er hámarkshrađi 80 km á klst. Yfirleitt keyri ég aldrei hrađar en leyfilegt er. Reynslan hefur kennt mér ađ á nćstu ljósum kinka ég kolli anzi föđurlega til ökumannsins sem fór framúr mér nokkru áđur á 110 km hrađa.

Undanfariđ hef ég gert skođanakönnun. Hvađa ökumenn er ţetta sem fara fram úr mér og keyra svona glćfralega á 100-110 km hrađa ? Niđurstađan kom mér á óvart. Meira en helmingur er kvenfólk og ţađ í yngri kantinum, svona á milli 20 og 30 ára. Síđan er spurning, hvers vegna, hver er orsökin ?


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband